17apríl

Jahérna...

freeekar langt síðan maður bloggaði eikkað...

eins og sumir vita þá eru ekki allir sáttir með það að ég bloggi ekkert...
en allavega... hérna kemur svo blogg!!

helgin mín var all lagleg!! fimmtudags djamm á selfossi með mínum 'ástkæra' frænda Hafþóri og það djamm varð bara alveg ágætt skomm!!!
5 tímar í rúminu (ish) og beint í bæinn að vinna á Café Bleu, frá 11-19, beint á aikido æfingu (yeah that's right, kjeellinn byrjaður í aikido!! bara snilli skomm) og svo beint heim, smá chill svo í pool með Auði, Jónsa, Tótu, Systu og Adda Risa. og svo beint niður í bæ með Adda Risa, bærinn dauður en þetta bjargaðist allt saman á endanum!! heim um hálf 7, Addi fékk að krassa á dýnunni.
3 tíma svefn seinna (again ish) skutlaði Adda uppí Árbæ svo í vinnuna. 11-20 og svo beint heim að taka mig til og beint í partý hjá Tótu, þar var stuð!! 15 manns eða eikkað og ég og Addi vorum einu karlkyns þarna Svalur eftir það var farið beint nirrí bæ á Hressó og vorum þar allan tímann!! bærinn fkn stúúúúútfullur!!! dansidansi mikiðmikið, kominn heim rétt eftir 7 og svo svefn.
4 tímum (ish of course) seinna þá vakna og vinna 12-18 og giskiði hvað!! beint til Önnu, var þar allt kvöldið, stoppaði við á shell og talaði við Kötu og Viktor og svo heim í rúmið.

helgin bara fín svona allt í allt Ullandi eyddi varla krónu, án djóks! frítt fyllerí alla helgina!! ég og Addi áttum flösku og svo er alltaf gaman af sopafylleríi Saklaus


en já... það sem er búið að gerast í mínu lífi síðan seinast... bekkjarhittingur, kind of byrjaði með stelpu og hættum aftur saman... Galantinn verður seldur... kallinn fer kannski á sjó í sumar/bráðlega... langar í willis... uuu... já... annars bara vinna og djamma og eikkað svollis!

farinn!! chao!
17. apríl 2007 klukkan 00:33
Heiðar Vigfússon
7 athugasemdir
07mars

hmm... vikan?

jæja... loksins kemst ég á netið hérna!! kominn tími til!!

allavega! var bara ágætlega þægur núna um helgina! fór á kátudagaball FSu núna á föstudaginn og var bara ágætt GlottandiUllandi hitti nokkrar skemmtilegar manneskjur (td. Haffa frænda, Sigga Magga, Jón, Hennýju frænku, Nínu beibí og marga fleiri! gerði ekkert alltof mikið af mér...  nema það að setja hraðamet á Galantinum og hitta ágæta stúlku á ballinuSaklaus gamangaman!!

var feitt að vinna á laugardskvöldinu eftir en hitti tvær GJELLLLLUUURR!! eftir vinnu og ekkert meira um það hérna *flaut* Þögull sem gröfin  og fór vel seinna um kvöldið á rúntinn og hitti svabbarann á labbinu á laugaranum!! pikkaði kjeellinn upp og við rúntuðum frameftir kveldi, hittum líka Binna og gjelluna sem hann var að pota í (giska ég á) og svona!!

annars var ég frekar þægur um helgina Ullandi

annað mál um þriðjudaginn... þar að segja núna í kveld!! þar sem ég og Viktor Firehawk fórum að rúnta á báðum bílunum okkar og kíktum beisíklí útum allt og ákváðum að þriðjudagsdjamm væri málið! skutluðum Firehawkinum heim og fórum á Gallanum á nokkra klúbba og skildum elskuna svo eftir nirrí bæ... góða nótt eeeelsku Ástríkur minn!! Koss og fórum á nokkra klúbbí vibbót! urðum all nokkuð ölvaðir! tipsuðum meira að segja (ég þar að segja þar sem Viktor vinnur þarna!!) og fengum svo far heim með Óla!!

en eitt stóð uppúr í dag!! þegar við vorum að fara með Firehawkinn heim þá ákváðum við Viktor að spyrna... ég hélt í hann meðann hann var að spóla en svo tók hann mig frekar þurrt í rassagatið og var á undan mér á næstu ljósum! spólaði hann svo all laglega á þeim ljósum, frétti seinna um kvöldið að það hefðu verið einhverjar gellur í bílnum hliðiná sem hann var að ganga í augun á, og ég elti nottlega... hann var ekkert mikið að gefa í en ég hélt þó alveg helvíti vel í hann og vorum komnir örlítið vel yfir hraðatakmörk þegar ég sá að hann bremsaði og vissi ég vel hvað var að ske, þar sem kallinn er með radarvara en ég ekki, og nelgdi nottlega niður!!! hann skipti um akrein þar sem hann var hræddur um að ég færi aftan á hann þótt ég væri með fulla stjórn en skiptir ekki máli! ekkert sýndist vera að svo við hröðuðum okkur aðeins aftur en þó ekki mikið og komum við svo í rassinn á lögreglumótorhjóli! SVÖRTU!! sem þýðir að það sé BMW hjólið sem hefði náð okkur báðum eins og ekkert sé! sem aftur þýðir að hefði hann ekki fengið smá viðvörunarkast (hversu falskt sem það var) þá hefðum við farið framúr þessu hjóli án þess að taka eftir því og það á vel meira en tvöföldum hámarkshraða!!!! og það hefði þýtt *snippsnipp* á okkur!! ekki gott en þvílík heppni er sjaldséð!! svo við höguðum okkur eftir það... og fórum á þriðjudagsdjamm Ullandi og kjeellinn fékk númer!! Svalur og giskiði hvar kjellinn fékk það!!

en allavega... góð helgi og vika verð ég að segja!! og svo forsýning á 300 á morgun og að öllum líkindum fara ljósin undir Gallann líka á morgun! búinn að tala við félagann um það og kostar ekki það mikið!! fer með hann rétt eftir hádegi á morgun... ef ég verð búinn að redda bankamálunum þar að segja þar sem bankinn ákvað bara að rukka mig um 60 þúsund kall... whaaa? rétti úr því á morgun líka!

allavega... svefninn kallar!! ekkert nýtt í kvöld! annað en þetta!! kannski nýtt fróðleikskorn ef ég nenni því...

annars bara COMMENT PEOPLE!!!!!!!!
chao!

p.s. fer að öllum líkindum að vinna á Café Bleu um/rétt fyrir mánaðamót svo að stay tuned!
07. mars 2007 klukkan 02:47
Heiðar Vigfússon
3 athugasemdir
01mars

piff

já...  blogg?


mánudeginum sem staffadjammið var þarna um daginn þá skrapp ég fyrr um daginn til selfoss og kíkti á m og p og brósa og a og ö og kb og ób og nóg komið af skammstöfunum!

þriðjudeginum (fyrir viku semsagt) keypti ég mér ný dekk að aftan undir Ástrík minn kæra og mátaði undir hann hinar guðdómlega flottu felgur og dekk sem ég mun mjög líklega fá mér ef ég sel ekki bílinn... já herrar mínir of frúr ég er að spá í að selja Galantinn minn! why? dno... margar ástæður á móti og með! set upp könnun á þetta!!

um helgina var ég held ég bara ágætlega þægur... drakk kannski heldur mikið á laugardeginum!! var eitthvað að slefa uppí gellu á Pravda og fann að ég þurfti að æla svo að ég 'afsakaði' mig og ældi inná Pravda... var hent út og fór beint inná Hressó þar sem ég hafði verið að hanga með Svabbaranum, Birki Hokkí, Simba og fleirum og fór skömmu seinna heim! og mætti alveg ágætlega þunnur í vinnuna á Sunnudeginum... og já... minntist ég á það að hafa sagt upp á föstudeginum?

jább ég sagði upp á Café París!! why? því að ég fékk nóg af þessu bulli, og það sem fyllti mælinn var að þeir sögðu að ég fengi aldrei ástæðu fyrir því afhverju ég hafi verið færður í starfi!! þannig að ég henti því framan í vaktstjórann/framkvæmdastjórann whatever að ég myndi vinna út mars og fara svo! og svo fóru Andrej og Mark og Aneta og Aurelia að tala við mig um að fara ekki því að 'this place needs you' og ég veit að það er satt!!

pæling!!
afhverju halda útlenskir atvinnurekendur að íslendingar séu lélegri að vinna en austur-evrópubúar(héðan í frá rúskís)? ég held því fram að þetta sé bara MJÖG rangt því að í fyrsta lagi þá geta mjög mikill meirihluti rúskís kunna ekki og geta ekki talað íslensku! og líka það að rúskís fara auðveldu leiðina framhjá ef það kemur upp vandamál en íslendingurinn finnur leið til að leysa vandann!
hvað finnst ykkur?

ekkert búinn að vera að gera núna mánudag, þriðjudag! en núna í dag kom Unnar litli bró í bæinn og við fórum á Macarann og á Hannibal Rising sem er bara alveg ágætlega töff mynd!! nema það að við vorum í sal 3 í kringlubíó, hátalari sprunginn og einhver róni að sötra bjór fyrir framan okkur!! en fín mynd samt!

jæja... endurtek að bíllinn gæti farið á sölu!
en jámm... bæbbs!
eitthvað af nýju dóti... nenni ekki að telja upp!

og COMMENT people!!
01. mars 2007 klukkan 01:04
Heiðar Vigfússon
1 athugasemd
21febrúar

OY!!

jæja... þar sem ég sit núna bara í herberginu mínu hérna í vesturbæ reykjavíkurborgar og hef nákvæmlega ekkert að gera, þar sem Viktor fékk Ástrík lánaðann til að skreppa austur og ég 'fékk' að hafa draslið hans á meðan... skemmtilega vill til að það er snjókoma og rúðuþurrkurnar virka ekki á draslinuÖskrandi

þannig að ég fór bra að blogga Ullandi

allavega, ég setti inn nokkrar myndir af kjeeellinum all vel helluðum þann 17 febrúar í fkn skotapilsi ójá, kjellinn heitur í því! vil þakka Sveinba (www.superman.is) fyrir að taka þessar myndir af mér *ahem* en allavega...

djammaði OF mikið núna um helgina!! chill á fimmtudagskvöldið, djamm með Adda risa á föstudeginum, vel hellaður þar... og pikkaði upp gellu og alles... fyndin saga... segi ykkur hana kannski Saklaus svo var ég aftur hellaður á laugardeginum, í skotapilsi með Ragga í eftirdragi Ullandi mjög gaman... var ekki að verða fullur fyrr en í endann!! og ég náði að fá 3 brennsastaup á 800 kjeell!! góður eða hvað?!?! allavega... vel ónýtur í vinnunni á sunnudeginum og svo hellaður á staffadjammi á mánudeginum Skömmustulegur og svo rúntur frameftir kvöldi í gær...

góð helgi... Svalur

en jámm.... ætla að reyna að halda uppi núna ágætum bloggum af og til núna héðan af!!

en þangað til... chao!
21. febrúar 2007 klukkan 16:15
Heiðar Vigfússon
Engin athugasemd
10janúar

plehh

jæja núna verður maður víst að blogga eitthvað... allavega svo þið haldið að ég sé ekki dauður!!

mörg partý og djömm liðin og sumarbústaðapartý og ótal margt sem ég nenni ekki að skrifa upp!!

kominn aftur í skóla! Iðnskólinn í Reykjavík, búinn að selja Corolluna, búinn að fá símann minn aftur og það í lagi Hlæjandi og borgaði ekki neitt og fékk jafnvel nýtt lyklaborð í leiðinni Svalur, fluttur í rvk, fékk stöðuhækkun á kaffi parís... og margt fleira Glottandi


nenni ekki að segja meira núna! er í skólanum og mun bloggast eitthvað meðan ég hef tíma til þess! framundan er þorrablót á klaustri Kleinenberg 9.feb og einhver annar sem ég man ekki alveg 19 jan. og bra geggjað gaman!

allavega! hættur í bili!
10. janúar 2007 klukkan 22:00
Heiðar Vigfússon
Engin athugasemd
21nóvember

blehh

jæja... helgin var... áhugaverð! vinna á Café París alveg geggt!!

fór að dúlla mér með stelpu og hætti því svo líka um helgina... alveg geðveikt... en jámm... svo snjóaði Hissa og kyngdi og kyngdi niður!! svo nottlega fór ég aðeins að chilla eftir vinnu og fór á óðal og svona... svo rétt undir morgun ætlaði ég að reyna að keyra bílinn minn heim Ullandi festist nottlega! og björgunarsveitin gaf mér bjartsýnirverðlaun kvöldsins og drógu mig í stæði Hlæjandi þannig að ég labbaði úr laugardalnum alveg niðrí bæ og svo í stúdentagarðana þar sem ég náði að fá mér nokkurra (2) tíma svefn hjá Runó og svo vinna! pabbi kom um kvöldið í gær og við grófum bílinn upp og svo gekk færðin alveg smooth heim skomm!

hef voooðalega lítið að segja!!
ætla bara að henda inn þessu hérna og svo er ég hættur!
p.s. 30 atriði um konur og kynlíf!! check it out!! svo satt!!

einhver tíska núna að setja þetta inná bloggsíður en gaman að sjá svör við þessu og svona Ullandi svo standið ykkur!! þið fáu sem lesið bloggið mitt!
1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
21. nóvember 2006 klukkan 03:30
Heiðar Vigfússon
1 athugasemd
16nóvember

Magnað...

jáhm... langt síðan seinast var bloggað!!

enjámm... lítið gerst hjá mér!
vinna um helgina... tók til meira að segja Hissa
jabbs... alltaf gaman á óðal! fyllibyttur og stripparar í drama...
fáránlega mikið að gera þessa helgi! Ég og Óli vorum alveg að kafna á tímum! og ég kveikti í vindil alveg fullkomlega!! klippti hann fullkomlega, kveikti á honum fullkomlega og fullkominn hringur þegar ég lét hann frá mér... og ég var mjög tregur á að láta hann frá mér!! Davidoff Special "R" og fullkomlega lighted... sniff...
en jámm... hommar láta mig enn ekki í friði... ég og Krissa erum bara ennþá betri vinir en við vorum Ullandi fékk meira að segja að koma í heimsókn til hennar þegar hún var veik heima á basshunterkvöldinu Óákveðinn hún átti frían miða og veiktist svo!! greyjið mitt Koss

en jámm... voðalega lítið að segja! búinn að gleyma öllu sem ég ætlaði að henda inn því það bilaði netþjónn bloggar.is og ég fáránlega pirraður og gleymdi öllu!! jú ég var slappur á fimmtudaginn og mánudaginn og sleppti vinnu vegna þess... er líka líklega að fara að taka einhverjar vaktir á barnum á Café Paris, samkvæmt Hemma allavega, kvöldin um helgarnar semsagt þegar það er ekkert kaffi framleitt Ullandi en það er bara fínt! fæ líka líklega íbúð/herbergi um mánaðamótin á gistiheimili sem félagi Bíbí rekur þannig að það er bara flott!! svo ætlar Frikki eitthvað að redda kaupanda á Rolluna mína þannig að það er bara ennþá betra!!

og já... mig langar í Dísarfugl!! var í dýrabúðinni í kjarnanum á selfossi og var eitthvað að snusast í kringum hana og skoðana og hún kom beint til mín og á hendina mína!! *klappklapp* ... og mínums langar í hana!! hefur líka alltaf langað í svona fugl Brosandi megið gefa mér hana í jólagjöf Glottandi

hey já... svo ætla ég að gera smá grín í Óla um helgina þannig að fylgist með!!

nýtt fróðleikskorn og mögulega fer ég að setja inn einhverjar myndir... hugsanlega, kannski, jafnvel, mögulega, gæti verið... pehh...

hættur!!
16. nóvember 2006 klukkan 21:19
Heiðar Vigfússon
Engin athugasemd
07nóvember

RIP skjár á símanum mínum! sniff

gleymdi að setja inn nokkuð slæmt sem gerðist fyrir mig um helgina!!

SÍMINN MINN ÁKVAÐ AÐ BIIIILAAAA!!!!!

hryllingur sko!! og það á fkn föstudagskvöldinu!! gat ekkert hringt í alla þá sem ég ætlaði að hitta og alles!!

komst svo að því á sunnudagsmorgninum að síminn virkar alveg... bara ekki skjárinn!! AAARRGG!!!!

en já... meðan ég man... það er til myndband af mér og Nínu Ullandi Þorbjörg eitthvað abbó eða eitthvað ákvað að taka upp eitt besta myndband ever á símann sinn! gæðin fáránlega góð og senan bara flott Svalur þeir sem hafa séð þetta vita það og hinir eru bara lúserar héhé!!

allavega! komin hálka og gaman að leika sér á Galant!! fullkomnir handarar og bara gaman að sjá fíflin sem kunna ekki jack að taka handara!! haha!

en já hættur núna!!
07. nóvember 2006 klukkan 05:11
Heiðar Vigfússon
4 athugasemdir
06nóvember

Select pulsa og kampavín ;)

jæja... tími á blogg finnst ykkur ekki?

hvort sem ykkur finnst það eða ekki þá ætla ég bara samt að blogga!! Ullandi

í vinnunni á fimmtudeginum hringja tveir bjánar í mig um 6 leytið og þurfa endilega á mér að halda... ég redda því með smá fiffingum og bruna svo á hellfossið!! djamm á vistinni hjá Sigga Magga kallinum... sukkmanninum sjálfum! eníveis... allir reknir út um 11 leytið... og að sjálfsögðu voru allir komnir aftur inn 5 mínútum seinna og haldið áfram að drekka Ullandi ég og Björk vorum að drekka laumuþrumur (þeir sem vita það ekki þá er það kokteillinn minn!) hún reddaði áfenginu og ég öllu hinu og blandaði nottlega Glottandi náði reyndar ekki að fullkomna blönduna alveg en hún var samt mjög fín! Nína var alveg hress líka Saklaus og nottlega allir hinir að sjálfsögðu!! eníveis... eftir svoldinn tíma fór eitthvað fólk að reykja inni (BANNAÐ) og Andrés komst að því og Siggi Maggi fékk rosalegt skamm og flottasti brandari kvöldsins kom fram þarna!! þegar Andrés kom þá nefnilega földum við allt áfengið og svona... en svo tók Andrés eftir því að einhver hefði læst sig inná klósetti og spurði hvort það væri einhver inná klósetti að rúnka sér... og því var neitað... en svo tók ég eftir því að það vantaði Jón Atla og sagði: ég held að þetta sé Jón Atli þannig að jú! allir skellihlógu og Andrés líka og right on cue kemur Jón Atli út!! og enn meiri hlátur! og svo kemur annar gaur þarna út og enn meiri hlátur!! 
geðveikt kvöld og kjellinn slefaði uppí tvær gellur yfir kvöldið!

föstudaginn fer kjellinn í vinnuna um 3 leytið (mæti semsagt um 4 leytið) og vinn á Café Paris til korter yfir 3 og þá var Jónsi búinn að segjast ætla að bjóða mér inná Nasa á Dj Lucca þegar ég væri búinn í vinnunni... sem kallinn gerir!! En áður en við förum á Nasa þá skellum við okkur á Óðal og ég fæ mér party-shooter, tópas skot, 4 töfrateppi og smirnoff ice... korteri eftir að ég fer frá París er ég kominn inná Nasa Svalur og ekki fullur!! gurg!! þá förum við Jónsi á barinn og fáum okkur tequila skot og fisherman skot... og kjellinn ekki enn fullur... en það reddaðist allt saman og við erum á dansgólfinu til 6 nema einu sinni til að fá okkur laumuþrumu... jónsi kenndi stelpunni að gera solleis!! hittum kreisí mikið af fólki sem við þekktum og nottlega dönsuðum fáránlega mikið!! löbbuðum heim og drápumst báðir!!

vaknði um 2 leytið, sturtu og beint í vinnuna... rigning er ógeðsleg by the way!!
byrja að vinna rétt fyrir 4 og vann til um 20 mín yfir 3 og 'beint' á óðal og fá mér að drekka... þar sem það var spáð stormi og ég einfaldlega nennti ekki að keyra í því!! fór líka á glaumbar og victor af einhverjum ástæðum... Hitti helling af fólki á Glaumbar og Helga frænda á victor... magnað... en já... fór á Óðal aftur svona rétt fyrir lokun og hékk þar með fólkinu, Viktor, ég og Gústi skutluðum stelpunum heim og fórum svo á Select í öskjuhlíðinni. Ég og Gústi fengum okkur pulsu og Viktor kalt kjúklingapasta... og dregur Gústi ekki upp eina flotta kampavínsflösku sem hafði aðeins verið drukkið eitt glas af um kvöldið og við drekkum það með pulsunum Svalur 48 þúsund króna kampavín með Select pulsum!! setning helgarinnar!! eftir það kemst ég að því að bíllinn minn er rafmagnslaus... great skiljiði... en fæ að lúlla hjá Jónsa aftur og við störtum bílnum deginum eftir og ég fer heim í ammælisköku hjá mömmu og svona!! Kellingin á afmæli í dag!!! Til hamingju með afmælið elsku mamma mín... svona ef þú lest bloggið mitt... just in case Glottandi

en jámm... frí í dag, morgun og hinn!! og allt crazy að gerast á msn þannig að bis später!! Glottandi
06. nóvember 2006 klukkan 00:40
Heiðar Vigfússon
Engin athugasemd
01nóvember

pottapartý?

jæja... kominn tími á það að ég bloggi aftur eh? Glottandi

en já... við fórum nokkur eitt kvöldið (man ekkert hvaða kvöld núna) heim til mín í pottinn og vorum með eitt stykki kyppu og svona Hlæjandi ég, Helgi, Krissa, Telma minnir mig að hún heiti og Diljá!!  og það var alveg talað og talað og talað og eikkað slefað og káfað og bara gaman skooo Svalur það versta var að einni stelpunni langaði víst geðveikt mikið að kyssa mig en hélt að ég og önnur stelpan sem var þarna vorum að dúlla okkur... og hún hélt það víst líka Tala af sér og ég bara blaðraði því útúr mér þarna í pottinum svo að allir heyrðu... Skömmustulegur hún var víst ekkert voðalega sátt... smá drama en fínt kvöld! allir skemmtu sér eitthvað og kippan kláraðist svo að það verður meira næst Glottandi hver er til?? commentið þá!!


en já... kjelllinn er byrjaður að vinna á Café Paris!! Svalur búinn að vinna þar í alveg viku mahr Ullandi hehe... en það er bara mjög gaman! svipuð vinna og á Óðal nema bara minna um að ég geti gamnast við fólkið en samt tips Glottandi og þá hættir maður bara á glaumbar því að Dennis er að fara að gera ráðningasamning og ég kvitta og er þá á föstum vöktum Hlæjandi og þær passa fullkomlega við vaktirnar á óðal! bara snilli skomm! og já! fann út að Viktor Dj er að vinna á select þannig að ég fer vanalegast alltaf þangað eftir vaktir og fæ mér pulsu með afslætti Svalur úff mahr! VIP bara hehe


ef ég var ekki búinn að tala um FSu ballið þá var það snilld Ullandi ég og Haffi í skotapilsum!! ennþá mér hátt í minni!!

en jámm... hættur í bili!!
01. nóvember 2006 klukkan 20:02
Heiðar Vigfússon
1 athugasemd

Fróðleikskorn

Having sex is like playing bridge. If you don't have a good partner, you'd better have a good hand

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur